Staðalisti fastanettenginga
Description
Gögn varðandi fastlínutengingar byggja á gögnum frá Þjóðskrá Íslands og á gögnum frá fjarskiptafélögum varðandi fjölda tenginga. Staðsetning byggir á Staðfangaskrá Þjóðskrár. Staðfang er í flestum tilfellum ein fasteign en í einhverjum tilfellum fleiri en ein. Gögnin sem hér eru birt eru staðföng sem innihalda lögheimili, vinnustað eða sumarhús.
Varðandi skráningu á tengjanlegum rýmum skal fjarskiptafélag merkja staðfang tengjanlegt sé eitthvað rými innan þess tengjanlegt. Það hvort rými teljist tengjanlegt er óháð því hvort það sé í raun að nýta þá tengingu. Þörf er á góðu gagnasetti varðandi vinnustaði á landupplýsingaformi sem aðilar geta sammælst um að nota en eins og staðan er í dag ber engin stofnun ábyrgð á slíku gagnasetti.
Við nýtum eins og áður segir gögn frá Þjóðskrá Íslands varðandi vinnustaði. Þjóðskrá Íslands aflar þó í raun ekki upplýsinga um vinnustaði heldur sigtar úr gögnum vissa notkunarflokka fasteigna fyrir Fjarskiptastofu. Einhverjar upplýsingar eru ekki tengjanlegar við önnur gögn og þær upplýsingar birtast því ekki á kortinu. Þetta á aðallega við um aðrar tengingar en ljósleiðaratengingar.
Resources
| Name |
Format |
Description |
Link |
Tags
- staðir
- internet
- staðföng
- fastanet