Description
Um er að ræða 65 loftmyndir úr Breiðafirðinum af svæði sem kallað er Breiðasund. Myndirnar eru bæði innrauðar og í lit. Greinihæfnin er 0,5 metrar. Myndirnar eru teknar úr 5000-5500 m hæð. Flatarmál svæðisins er 260 km2.
Myndkort gert bæði í lit og innrauðum lit í blaðskiptingu Reitakerfi Íslands 5 x 5 km.
Myndir eru teknar á myndavél sem heitir Vexcel UltraCam D. Unnið af Samsýn ehf.
Úr myndunum var einnig gert hæðarlíkan og gögnum skilað sem vektorgögnum, þ.e. punktar, brotlínur og 2m hæðarlínur. Hæðarlíkani á rastaformi var ekki skilað. Sjá hér í landupplýsingagáttinni "Breiðafjörður-hæðarlíkan og línur".
Resources
| Name |
Format |
Description |
Link |