Description
Gagnaset (data set) ni_vg25v_1.1utg:
Vistgerðir á Íslandi: ferskvatn og fjörur (Habitat types of Iceland: freshwater and littoral shores).
Vistgerðakortið sýnir útbreiðslu ferskvatns- og fjöruvistgerða á Íslandi.
Alls hafa verið ákvarðaðar 17 vistgerðir fyrir ferskvatn og 24 vistgerðir fyrir fjörur. Ferskvatnsvistgerðir skiptast í tvö þrep, en fjöruvistgerðir í fimm þrep.
Við skilgreiningu og flokkun vistgerða á Íslandi var tekið mið af EUNIS-flokkunarkerfinu (European Environment Agency 2012) .
Landupplýsingaþekjan fyrir jarðhita, ferskvatns- og fjöruvistgerðir er á vektorformi. Vektorþekjurnar eru flestar flákaþekjur, en fyrir ferskvatn er einnig línu- og punktaþekja. Gögn fyrir stöðuvötn (vg2 = V1) eru fjarlægð tímabundið úr niðurhalsþjónustu vegna ágreinings um grunnkort Loftmynda ehf. en þekjan er sýnileg í kortasjá.
Náttúrufræðistofnun Íslands leggur með ritinu Vistgerðir á Íslandi fram tillögur að flokkun vistgerða sem á sér fyrirmynd í samræmdri og viðurkenndri flokkun vistgerða í Evrópu. Flokkunin byggir á rannsóknum víða um land með fyrirvara um að bæta mætti í þá þekkingu.
Frekari upplýsingar um flokkun og skilgreiningu vistgerða má sjá í ritinu: Jón Gunnar Ottósson, Anna Sveinsdóttir og María Harðardóttir, ritstj. 2016. Vistgerðir á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 54. 299 s. og á vef Náttúrufræðistofnunar.
Resources
| Name | Format | Description | Link |
|---|---|---|---|
| Niðurhalssíða Náttúrufræðistofnunar Íslands | Unknown | Open resource | |
| V1_Stöðuvötn_–_Standing_waters19613 | Unknown | Open resource | |
| V2_Straumvötn_–_Running_waters_L48953 | Unknown | Open resource | |
| V2_Straumvötn_–_Running_waters_P12949 | Unknown | Open resource | |
| Fjörur_–_Littoral_shores21372 | Unknown | Open resource |