Description
Myndirnar voru teknar af Swedesurvey á tímabilinu 19.ágúst-09.september 2000. Viðmiðunarflöturinn er sporvalan WGS84 og nákvæmnin er +/- 2m (e. relative accuracy). Um er að ræða 58 myndir sem teknar voru árið 2000 er færðar inn í kerfi LMÍ 14.06.2001. Myndirnar eru í mælikvörðunum 1:13.000 / 1:20.000 / 1:36.000. Hæðarlíkan (og hæðarlínur) var unnið af Swedesurvey út frá myndunum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá stofnuninni: natt@natt.is. LMÍ keyptu fullan afnotarétt á myndirnar og gögnin og má stofnunin dreifa þeim. Séu myndirnar og/eða gögin notuð þarf að geta uppruna þeirra, þ.e. að þau séu upprunalega frá Swedesurvey (höfundaréttur) en í eigu LMÍ.
Um er að ræða svokallað "pilot project" sem ákveðið var að framkvæma sem hluta af undirbúningi áður en hafist var handa við vinnuna á landsþekjandi gagnasafni LMÍ, IS 50V. Á þessum tíma voru einungis til gömul gögn (er fyrir utan DMA kortasvæðið). Kannað var á afmörkuðu svæði hver kostnaður gæti orðið fyrir gögn fyrir allt landið og hvaða gæðakröfur ætti að gera.
Resources
| Name | Format | Description | Link |
|---|