Markarfljót - hæðarlíkan og línur

Description

Hæðarlínur og landlíkan unnin upp úr loftmyndum af Markarfljóti.

Vektorgögn:
Gögnin voru unnin af Samsýn ehf og voru unnin upp úr myndkortinu af sama svæði.
Geymd í ArcGIS File Geodatabase.
Gögnin eru flokkuð skv. staðli IST120 frá árinu 2007.
Hnitakerfi er ISN93, lambert kortvörpun.

3 Fitjuklasar afhentir:
- Hæðarlínur með 1 m. millibili
- Hornpunktar þríhyrningalíkans af landi
- Brotlínur landlíkans (þrívíðar)

Útgáfudagsetningin 09.12.2010 er tekin af lýsingunni sem fylgdi gögnunum til LMÍ.

LMÍ gerði nytjaleyfissamningur um gögn Samsýnar ehf úr loftmyndum af Eyjafjallajökli og Markarfljóti,
í umboði nokkurra stofnanna:
- Vegagerðin
- Landgræðslan
- Veðurstofa Íslands
- Umhverfisstofnun
- Náttúrufræðistofnun.

Gögnin voru unnin úr loftmyndum, annars vegar úr háflugi yfir Eyjafjallajökli og hluta Mýrdalsjökuls og hins vegar úr lágflugi yfir Markarfljóti.

Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni var eldgosið sem átti sér stað sama ár (2010)í Fimmvörðuhálsi. Tilgangurinn var að greina breytingarnar sem eldgosið orsakaði.

Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var um að ræða þetta hæðarlíkan og hins vegar myndkort.

Sjá lýsigögnin hér í Landupplýsingagáttinni undir "Markarfljót - myndkort".

Resources

Name Format Description Link

Tags

Topics

Categories