Nytjaland 2006 – Áætlað flatarmál jarða

Description

HMS varðveitir nú gagnagrunn sem kenndur er við Nytjalandsverkefnið og er hann síðan árið 2006. Tilgangur verkefnisins var meðal annars að „safna upplýsingum um bújarðir landsins og skrá í samræmdan gagnagrunn“. Upplýsingarnar áttu að „taka til landkosta, svo sem gróðurs, ástands landsins, landamerkja, landslags og stærðar helstu landeigna“. Verkefnið fór fram á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands (áður á Rannsóknastofnun landbúnaðarins), Landgræðslu ríkisins, Bændasamtaka Íslands og Landbúnaðarráðuneytisins, en starfið fór að mestu fram á LBHÍ. Eignarhald þess hluta verkefnisins er fjallar um flatarmál jarða færðist yfir til HMS þegar landupplýsingadeild Þjóðskrár Íslands var færð þangað árið 2022. Ætlunin var, fyrst um sinn, að vinna gögnin áfram, bera þau saman við þinglýst skjöl, bæta við þau og breyta þannig að úr yrðu áreiðanleg gögn um eignamörk jarða á Íslandi. Fljótlega komu þó upp hnökrar og í ljós kom að sökum þess hversu ólíkar línurnar eru að gæðum, bæði hvað varðar heimildir og viðmiðunargögn, er ótækt að túlka þær sem eignamarkalínur í lagalegum skilningi. Eftir stendur þó áhugaverð heimild um fyrstu tilraun sem gerð var til að safna landamerkjum jarða á Íslandi saman á stafrænu formi.

Gögnin eru hér óbreytt eins og Þjóðskrá Íslands tók við þeim árið 2006. Nánari upplýsingar um Nytjalandsverkefnið má nálgast hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

EIGINDIR:
OBJECTID-Einkvæmt auðkennisnúmer.
SVFN-Sveitarfélagsnúmer.
SYSLA-Sýslunúmer.
HREPPUR-Hreppanúmer.
HREPPSNAFN-Heiti hrepps.
HEITI-Heiti lands/landa.
LANDNR-Landeignarnúmer skika.
LANDNR2-Annað landeignarnúmer skika.
FJÖLEIGNARLAND-Fjöleignarland athugasemdir.
UPPRUNI-Uppruni gagna.
UPPLÝS_AR-Ár upplýsinga.
INNSETT_AR-Innsláttarár.
ADFERD-Aðferðarfræði innsetningar.
NYTJAD_AF-Nytjað af.
ATH-Athugasemd.
GERD-Landgerð samkvæmt hlutverksflokkun Nytjalandsverkefnisins.
FLOKKAR-Staða fláka í gagnagrunninum.
SHAPE-Hnit afmörkunar.

Frekari upplýsingar um eigindi og hvað er á bakvið hvern dálk má finna hér fyrir neðan í eiginalýsingu gagna úr nytjalandsverkefninu.

Resources

Name Format Description Link
Vefsjá landeigna Unknown Open resource
public:Nytjaland2006 Unknown
HMS - niðurhalsþjónusta Unknown Open resource
Eigindalýsing gagna úr nytjalandsverkefninu Unknown Open resource

Tags

Topics

Categories